24.06.2017 17:59Stóru Skemmtiferðaskipisnúið frá ReykjavikurhöfnStóru skemmtiferðarskipi sem koma átti að höfn í Reykjavík í dag var snúið við vegna veðurs. Um er að ræða 115 þúsund tonna skip með 3.096 farþega innanborðs og 1.239 manna áhöfn. Skipið, sem ber nafnið MS Azura, er eitt það stærsta sem koma átti hingað til lands í sumar. Að sögn Gísla Jóhanns Hallssonar, yfirhafnsögumanns, þótti vindáttin ekki nógu hagstæð til að hægt væri að leggja skipinu við höfnina, en sterk norðanátt var þar í morgun. Hafnsögumaður frá Faxaflóahöfnum fór um borð í skipinu snemma í morgun og gerðar voru tvær tilraunir við að koma því að höfn, en loks var ákveðið nú fyrir hádegi að snúa því við. Mun það því ekki leggja við höfn í Reykjavík og heldur ferð sinni áfram. Skipið hafði hins vegar komið til hafnar á Akureyri og Ísafirði. Stóru skemmtiferðarskipi sem koma átti að höfn í Reykjavík í dag var snúið við vegna veðurs. Um er að ræða 115 þúsund tonna skip með 3.096 farþega innanborðs og 1.239 manna áhöfn. Skipið, sem ber nafnið MS Azura, er eitt það stærsta sem koma átti hingað til lands í sumar. Að sögn Gísla Jóhanns Hallssonar, yfirhafnsögumanns, þótti vindáttin ekki nógu hagstæð til að hægt væri að leggja skipinu við höfnina, en sterk norðanátt var þar í morgun. Hafnsögumaður frá Faxaflóahöfnum fór um borð í skipinu snemma í morgun og gerðar voru tvær tilraunir við að koma því að höfn, en loks var ákveðið nú fyrir hádegi að snúa því við. Mun það því ekki leggja við höfn í Reykjavík og heldur ferð sinni áfram. Skipið hafði hins vegar komið til hafnar á Akureyri og Ísafirði.
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1454 Gestir í dag: 42 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060870 Samtals gestir: 50945 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 16:55:58 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is